Monday, November 29, 2010

4.Flokkur. Frostleikir á Ásvöllum um helgina.

Heil og sæl

4.Flokkur spilaði tvo leiki um helgina í frostinu á Ásvöllum um helgina.

FH2 spilaði við Hauka á laugardagsmorgunin og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli þar sem Haukar jöfnuðu í blálokin. Liðið lék vel í leiknum sér í lagi í fyrri hálfleik og skapaði sér mýmörg færi til þess að klára leikinn. Engu að síður erum við sáttir við framlag leikmanna í leiknum og heilt yfir fínasta frammistaða. Markaskorari; Melkorka

FH1 spilaði síðan í frostinu á morguninn eftir. Mótherjarnir voru Grindavík og má segja að þetta hafi verið algjör einstefna. Liðið vann stórsigur en því miður var ekki mikil mótspyrna en mörkin voru á annan tug.
Markaskorarar: Selma, Nótt, Erna, Ingibjörg, Kolfinna, Jóna, Mellý, Korký og Helga.

Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda

4 comments:

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu í dag (mánud.)
er veik :(
-birta mar

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu í dag (mánud.)
er veik :(
-saralíf

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu í dag (miðvikud) er að læra undir próf
hafdís alda

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu í dag (föstud.)
er enþá veik :(
-birta mar