FH og Haukar mætast í N1 deild karla þriðjudaginn 30. nóv kl. 19:45 í Kaplakrika.
Það er frítt á völlinn í boði Rio Tinto Alcan.
Fyrir leikinn verður mikil hátíð og opnar húsið kl. 18:30. Nú er komið að því að slá aðsóknarmetið.
Þeir sem koma fram eru: Erpur Eyvindarson, Friðrik Dór og Hafnarfjarðarmafían.
Boðið verður upp á hamborgara á vægu verði, Heimir Guðjóns og Jörundur Áki muni etja kappi við Eggert Bogason og hans aðstoðarmenn á grillinu þar sem reynt verður að setja met í hamborgarasölu.
MÆTUM ÖLL Í SVART-HVÍTA FH-BÚNINGNUM!!!
Ath. að æfing hjá 3. fl. fellur niður á morgun vegna þessa. Stefnt er að æfingu á gervigrasinu á miðvikudag ef aðstæður leyfa. Nánar síðar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment