FH stelpurnar mættu Keflavík í gær (sunnudag) í Reykjaneshöllinni og liðin buðu upp á sannkallaða markasúpu.
Leiknum lauk með 5-10 sigri FH en staðan í hálfleik var 2-4. FH stelpurnar léku vel á köflum og það er ljóst á leik þeirra að undanförnu að þær eiga ekki í erfiðleikum með að skora mörk.
Markaskorarar FH að þessu sinni voru þær Alda, sem gerði sér lítið fyrir og skoraði 5 mörk (2 víti), Guðrún með 2 mörk, Tinna einnig með 2 mörk (það voru fyrstu mörk Tinnu fyrir FH og óskum við henni innilega til hamingju með að vera komin á lista yfir markaskorara FH) og Bryndís Sunna með 1.
Elva Björk, vængmaður FH, meiddist á hönd snemma í leiknum og varða að fara af velli. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Elvu þá fór betur en á horfðist, hún er óbrotin og líðan hennar góð. Elva mun taka sér frí í fáeina daga frá æfingum og jafna sig á meðslunum.
Keflvíkingar lánuðu FH markmann að þessu sinni sem heitir Erna og stóð sig vel í marki FH. Við kunnum henni og þjálfara hennar bestu þakkir fyrir greiðan.
Aðeins einn leikur er eftir fyrir jól, gegn Haukum, en ekki hefur enn verið ákveðin leiktími.
! Athugið að líklega fellur æfing niður á morgun þriðjudag vegna leiks FH og Hauka í N1-deildinni í handbolta en leikurinn fer fram í Krikanum. Það hefur skapast hefð fyrir því að leikmenn og þjálfara yngriflokka í knattspyrnu og mæti á þessa leiki og styðji strákana.
Nánar síðar í dag!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
verður ekki afreksskóli heldur?
Post a Comment