Tuesday, March 01, 2011

FH-ingar í úrtakshópum

Tvær stelpur úr 3. fl. hafa verið boðaðar til æfinga með U17 ára landsliðsúrtaki.
Það eru þær Viktoría Valdís sem æfir með 1995 og Guðrún Höskuldsdóttir sem æfir með 1996.
Til gamans má geta þess að FH á einnig þrjá fulltrúa í U19 en það eru þær Aldís Kara, Sigrún Ella og Birna Berg. Sú síðastnefnda er samningsbundin FH en er sem stendur á láni hjá ÍBV og spilar með þeim á komandi tímabili.
Til hamingju stelpur - það er greinilega verið að fylgjast með ykkur.
kv. Þjálfarar

3 comments:

Anonymous said...

Til hamingju Stelpur!

Anonymous said...

Frábær frammistaða, til hamingju stelpur!
En er þetta hópur sem þjálfararnir völdu eða KSI?

Anonymous said...

KSÍ velur alltaf þá leikmenn sem þeir vilja skoða.

Stundum kemur það fyrir að sambandið óskar eftir ábendingum um leikmenn.

Það var ekki að þessu sinni og gerist í rauninni sára sjaldan.

kv. Þjálfara