Thursday, December 09, 2010

Allur pakkinn í Fagralundi í dag. Tap, Sigur og Jafntefli. Munið æfinguna á morgun 18:00

Heil og sæl

Breiðablik bauð okkur í heimsókn í dag í Fagralundinn og voru aðstæður eins góðar og hægt er 9.desember. Hlýtt og blautt og völlurinn í þokkalegu standi.

A-liðið spilaði hörkuleik við Blikastúlkur þar sem liðin gáfu hvorug neitt eftir. Í hálfleik var staðan 0-0 og bæði lið höfðu átt færi þó að Blikar hefðu verið ofar á vellinum. Í seinni hálfleik gáfum við í og fórum að spila mun framar á vellinum. Liðið skapaði sér fleiri færi í seinni hálfleik og voru þó nokkur ansi góð en inn vildi boltinn ekki. Blikar náðu að skora tvö mörk undir lokin og þannig fóru leikar, 2-0 fyrir Blikana.

Þetta var flottur leikur hjá A-liðinu í dag gegn hörkuliði Blikana sér í lagi þegar við tökum tillit til þess að gæðaleikmenn vantaði í liðið í dag. Þær sem komu inn stóðu sig með mikilli prýði og heilt yfir er þjáfarinn sáttur við frammistöðuna þó það sé súrt að tapa leiknum.

B1-liðið spilaði því næst og eins og hjá A-liðinu þá var leikurinn einnig hörkuleikur. Í byrjun átti liðið erfitt uppdráttar enda voru margir leikmenn að spila saman í fyrsta skipti saman sem lið í langan tíma. En liðinu óx ásmegin og fór að skapa hættu upp við mark andstæðinga. Eftir eina slíka sókn komst liðið yfir með marki Korký Knudsen sem skoraði af harðfylgi eftir góðan undirbúning Birgittu og Rannveigar.
Í seinni hálfleik hélt liðið illa boltanum og Blikar áttu tækifæri að jafna leikinn en við áttum þó skyndisóknir og sköpuðum okkur einnig góð færi. En liðið hélt forystunni allan tímann og liðið uppskar góðan sigur 1-0.

Ágætis frammistaða hjá liðinu í dag en þrátt fyrir sigur getur liðið enn betur. Liðið hélt boltanum heilt yfir ekki nógu vel en jákvætt var að sjá til skyndisókna liðsins í dag.

B2 spilaði strax á eftir en í ljósi þess að fjölmarga leikmenn vantaði bæði hjá B1 og B2 í dag voru einungs sex leikmenn mættir til leiks en liðið fékk þó fjóra leikmenn frá B1 til að fylla upp í skarðið.

Liðið lék því einum færri í leiknum sem gerði það að verkum að liðið var lítið með boltann. Liðið varðist þó mjög vel í leiknum og gerði sitt besta að sækja að marki andstæðinganna. Leikar enduðu með 1-1 jafntefli þar sem Rannveig jafnaði í lokin með glæsilegum einleik.

Fín frammistaða hjá liðinu og gaman að sjá til leikmanna á yngra árinu sem eru að spila sína fyrstu leiki á stórum velli. Hafdís Einars spilaði sinn fyrsta leik og stóð sig með prýði.

En þeir leikmenn sem voru boðaðir í leikina verða að láta vita sem allra fyrst ef þeir komast ekki til þess að við lendum ekki í aðstæðum sem þessum. Einnig lét ég það fylgja með í boðuninni í leikinn að láta mig vita ef ég hefði gleymt einhverjum nöfnum.
Verið óhræddar að hafa samband þar sem við settum þetta strax inn eftir æfingu og þá er hætta að gleyma einhverjum nöfnum.


Heilt yfir fínt í Fagralundinum í dag og þökkum við Blikunum fyrir að bjóða okkur í heimsókn.

Kv. Þórarinn B.

4 comments:

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu á morgun :( !
-melkorka katrín!

Anonymous said...

kem a morgun :)


- Björk

Ásdís Inga said...

Kemst ekki á æfingu í dag(föstudag), ball í skólanum
KV Ásdís

Anonymous said...

kem ekki á æfingu í dag er með svo mikið kvef og hálsbólgu.
-hildur maría