Tuesday, December 07, 2010

4.Flokkur. Æfingaætlun fram að jólafrí. Æfingaleikur á fimmtudaginn við Breiðablik

Heil og sæl

Við erum að smíða æfingarnar fram að jólafrí en við eigum eftir að eiga aðeins við æfingatöfluna en svona lítur þetta út þessa stundina.

8.des. Mið. Risinn. 15:00
9.des. Fim. Fagrilundur. Breiðablik-FH Æfingaleikir. Frá 15:00-18:00
10. des. Fös. Risinn 18:00
12.des. Sun. Ásvellir. ??
13.des. Mán. Risinn. 17:00
15.des. Mið. Risinn. 15:00
17. eða 21. des. Fös/Mán. Risinn. Jólaæfing ??

Við reiknum með að hafa síðustu æfinguna fyrir jól annaðhvort föstudaginn 17.des eða mánudaginn 20.des en við ræðum við ykkur um hvað hentar. Einnig vil ég sjá hverjar komast á æfingu á sunnudaginn þar sem þessir aðventudagar eru miklir fjölskyldudagar. Endilega látið í ykkur heyra í athugarsemdarkerfinu.

Breiðablik er tilbúið að taka á móti okkur á fimmtudaginn í Fagralundi. Spáin á fimmtdag er fín þ.e.a.s það er spáð rigningu og sjö stiga hita þannig að það á vera í lagi að spila "úti". Við ætlum að taka þrjá klukkutíma leiki og verða liðin tilkynnt á æfingunni á morgun.

Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda

5 comments:

Melkorka (: said...

ég kem örugglega á æfingu á morgun.. veit samt ekki :/ ..
-melkorka katrín (-:

Anonymous said...

ég má ekki fara á æfingu á morgun (miðvikudag) .. er veik :/
helga ýr :)

Anonymous said...

ha, spilum við í þrjá klukkutíma ?
-bryndís ýr

Kári Freyr said...

Ja Bryndís, við ætlum að reyna við evrópumetið :)

nei nei hver leikur er í klukkutíma. 1 leikur = 1 klst
3 leikir = 3 klst

Anonymous said...

kem á æfingu :D !
-melkorka katrín :) ;*