Fjáröflun hjá 4. flokk kvenna
Vegna ferðar 4.flokks á Goðamótið á Akureyri í febrúar verður farið í fjáröflun í desember.
Við ætlum að selja flatkökur frá Kökugerðinni HP á Selfossi 10 heilar á 1000 kr. Einnig kaffi frá Te og kaffi, 2 pokar á 1500 kr. Hægt er að velja um malað eða baunir, annar pokinn er hátíðarkaffi. Stelpurnar fá 500 kr í gróða fyrir hverja einingu.
Sendið okkur tölvupóst fyrir kl. 20.00 á sunnudagskvöld 12. des, þær sem ætla að vera með, með nafni stelpu, foreldris og símanúmeri. Við stefnum á að afhenda vörunar á fimmtudaginn 16. des, nánar síðar.
Hver og einn leikmaður er frjálst að taka þátt í þessari fjáröflun.
Ef einhverjar spurningar endilega hafið samband við Telmu (telma@husin.is ) eðaHelgu Dögg ( helgadogg@aslandsskoli.is )
Kv. Nefndin.
No comments:
Post a Comment