Stelpurnar í 3ja unnu góðan 6-0 sigur á Blikum í lokaleik sínum á Íslandsmótinu. Segja má að gestirnir hafi byrjað betur en FH vann sig vel inn í leikinn. Þegar flautað var til leikhlés hafði markahrókurinn Elva Ástþórsdóttir skorað tvö mörk fyrir FH en gestirnir ekkert. Elva skoraði þar sitt 13. marki í móti á vegum KSÍ í sumar og er í öðru sæti yfir markaskorara flokksins á eftir Aldísi Köru.
Í síðari hálfleik héldu FH engin bönd og liðið bætti við 4 mörkum. Þar voru að verki þær Aldís Kara (2 mörk) með sitt 20. mark í sumar, Ýr Steinþórsdóttir með hægri fæti og Viktoría "ViggÓ" Valdís. Lokatölur 6-0.
Liði FH hefur gengið upp og ofan í sumar. Sigurinn í gær er því ánægjulegur endir á tímabilinu og sýnir hversu mikið býr í raun í liðinu. Framundan eru vistaskipti þar sem lang stærstur hluti hópsins gengur upp í 2. fl. og yngri stúlkur færast upp á eldra ár. Áður en af því verður er þó ætlunin að æfa einu sinni og halda gott Partý.
Lokaæfing verður á laugardaginn kl. 11:00 í Risanum.
kv. Davíð
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
ha er ekki lokahóf í október??:O
Hvaða sauður er þetta? Auðvitað er lokahóf í lok sept eða byrjun okt.
kv. Davíð
ég kemst ekki á seinustu æfinguna er að keppa í golfi...
guðrún brá
Post a Comment