Wednesday, September 01, 2010

4.Flokkur. Húsavík -Úrslitakeppni A-liða

Heil og sæl

Úrslitakeppni A-liða fer fram um helgina og er okkar riðill á Húsavík. Við erum í riðli með Völsungi, KS/Leiftri og Fjölni.

Við leggjum af stað á morgun, fimmtudag, frá Kaplakrika um þrjúleytið og komum um kvöldið til Húsavíkur.
Við gistum í íþróttamiðstöðinni á Húsavík og borðum á Fosshótelinu. Ferðin kostar sex þúsundkrónur (auka þúsund krónur fyrir kvöldmat á fimmtudaginn) og eiga leikmenn einnig að koma með nesti með sér og einhvern vasapening.

Leikmenn verða taka með sér allt sem tilheyrir fótboltanum, dýnu, svefnpoka, sundföt, lesefni og að sjálsögðu góða skapið.

Hér er skipulagið fyrir ferðina:

Fimmtudagur 2.september.


Kl. 15:00. Brottför frá Kaplakrika.
Kl. 18-19: Kvöldmatur á leiðinni.
Kl. 21-22: Húsavík
Kl. 23:40. Svefn.
Föstudagur 3. september
Kl. 9:00. Morgunmatur.
Kl 13:00.Hádegismatur. NESTI að heiman.
Kl. 16.30 Leikir á Húsavíkurvelli.
Kl. 19.30 Matur á Fosshótel Húsavík – Lasagna, ferskt salat og nýbakað brauð.
Laugardagur 4. september
Kl. 07.00-10.00 Morgunverðarhlaðborð á Fosshóteli.
Kl. 12.00 Leikir á Húsavíkurvelli.
Kl. 18.30 Matur á Fosshóteli – Kjúklingabitar, franskar kartöflur, sósa og gosglas.
Sunnudagur 5. september
Kl. 07.00-10.00 Morgunverðarhlaðborð á Fosshóteli.
Kl. 12.00 Leikir á Húsavíkurvelli.
Kl. 14.00 Grillaðar pylsur og safi við íþróttahöllina áður en haldið er heim.

Boðið verður upp á gistingu í íþróttahöllinni. Fosshótel er þar rétt hjá.
Frítt er í sundlaug Húsavíkur fyrir 17 ára og yngri. Sundlaugin er opin til 21.00 á föstud. 10.00-17.00 laugardag og sunnudag.


Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda

No comments: