Saturday, January 03, 2009

4.Flokkur. Að mörgu er að hyggja

Heil og sæl og gleðilegt ár.

Ég vona að þið hafið haft það gott um hátíðirnar og hvílt ykkur vel. Við byrjum aftur mánudaginn 5.janúar og byrjum þá á fullum krafti. Stefnt verður á að spila mikið í janúar og febrúar en Faxaflóamótið mun hefjast fyrr í ár en áður, í lok febrúar. Einnig hefur okkur verið boðið að taka þátt í Goðamóti Þórs á Akureyri í lok janúar en við tökum ákvörðun í vikunni um það. Í lok vikunnar munum við halda foreldrafund og taka ákvörðun um verkefni ársins 2009.

Mætingar í desember hjá hópnum var með ágætum þrátt fyrir allt "jólastússið" en frá og með fyrstu æfingu í janúar ætlumst við til þess að leikmenn mæti sem allra best á æfingar. Við munum halda sömu æfingatímum og fyrir jól.

Þann 20. desember spiluðum við Stjörnuna í Garðabænum og spiluðu 20 leikmenn leikinn og stóðu sig allir með miklum sóma. Liðið sótti vel og lék boltanum vel á milli sín og uppskáru sex mörk en Stjörnustúlkur skoruðu eitt mark. Markaskorar voru: Hulda 2, Alana, Guðrún, Oktavía og Elva.

Æfingataflan næstu tvær vikunnar.

Mánudagar. Risinn 16:00-17:00
Miðvikudagar. Gervigras. 17:00-18:00
Fimmtudagar. Risinn. 19:00-20:00
Sunnudagar. Risinn 13:30-15:00

Að lokum minni ég á foreldrafund á fimmtudaginn 8. janúar klukkan 20:10 í Lækjaskóla.

Kv. Þórarinn B.

5 comments:

Anonymous said...

hæ ég kemst ekki á æfingu í dag (mánudag) því að ég er veik
-Sarahólm**

Anonymous said...

hæ...sorrý komst ekki á æingu í dag en gleðilegt ár;P

Anonymous said...

gleymdi að skrifa nafnið mitt...
-sylvía :Þ:Þ

Anonymous said...

hæ komst ekki á æfinguna í gær afþví að ég er með kinnholabólgu kem kannski á næstu æfingu er ekki viss
-Agnes Ýr

Anonymous said...

eru æfingarnar á miðvikudögum núna bara í klukkutíma..ekki klukkutíma og korter :/ ?
-Alda ;)