Sunday, January 04, 2009

3. fl. Gleðilegt nýtt ár!!!

Jæja er ekki komin tími til að fara æfa aftur - á fullu?
Fyrsta æfing á nýju ári verður miðvikudaginn 7. næstkomandi kl. 18:00 á gervigrasinu í Krikanum.
Frekari æfingaáætlun verður birt á næstu dögum en búast má við að æfingataflan sé að mestu óbreytt.
Framundan er spennandi ár með fjölda verkefna. Tíminn líður hratt og áður við vitum af þá verður keppnistímabilið komið á fullt. Við eigum góða möguleik á að vera í toppbaráttu á árinu sem nú gengur í garð. Ef svo á að vera verður metnaður og toppæfingasókn að vera fyrir hendi.
Ég skora á alla leikmenn í 3ja til að mæta vel og æfa á fullu frá fyrstu æfingu. Æfingin skapar meistarann.
kv. Davíð
! Munið að svo ávallt að fylgjast vel með á síðunni. Þeir sem enn hafa ekki gert dasfh.blogspot.com að opnunarsíðu í tölvunni hjá sér eru pappakassar.

3 comments:

Anonymous said...

veit einhver hvort að það sé afreksskólaæfing á morgun (þriðjudag) ?

Anonymous said...

verdur ekki akademia a mrg..
/una

Anonymous said...

Afreksskólinn hefst í næstu viku.

kv. Davíð