Thursday, September 27, 2007

Unglingadómaranámsskeið hefst 12 október


Unglingadómaranámskeið verður haldið í október og er að mestu leyti um heimanám að ræða. Þátttakendur fá námsefnið sent í þrennu lagi með tölvupósti (þrjá föstudaga í röð,fyrst 12/10), en námskeiðinu lýkur með prófi 5. nóvember.

Prófið sjálft verður ekki þreytt í gegnum netið, heldur fer próf fram í höfuðstöðvum KSÍ í Reykjavík og víðar ef þörf krefur.

Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 11. október

Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1991) og eldri.
Hægt er að skrá sig með tölvupósti, magnus@ksi.is eða í síma 510-2909 í síðasta lagi 11/10. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Nafn, heimilisfang, kennitala, sími, GSM, netfang, félag.

! Athugið að unglingaráð FH greiðir kostnað af námsskeiðinu. Þá eru áhugasamir foreldrar um dómgæslu hvattir til að skrá sig.

kv. Davíð

No comments: