3. flokks-leikmaðurinn Lovísa Erlingsdóttir var aftur á skotskónum í kvöld fim. 24. og setti 2 með meistaraflokki gegn ÍA í Faxaflóamótinu. FH-ingar hófu leikinn með látum og þegar 10 mín voru liðnar af leiknum var staðan 2-0 með mörkum frá Lovísu. Mörkin voru dæmigerð fyrir Lovísu, gegnumbrot með góðri afgreislu framhjá markmanni ÍA. 2. flokks-leimaðurinn Bella kom svo með 3. markið og urðu það lokatölur leiksins, 3-0.
Það eru góðar fréttir fyrir okkur í yngriflokkunum að leikmenn í 2. og 3. fl. séu farnir að banka hraustlega á dyr úrvaldeildar-liðs mfl. kvenna. Og það okkur sýnir hvaða möguleikar býða þeirra sem leggja mikið á sig og vilja verða góðir í fótbolta. Það hlýtur að vera markmið allra leikmann sem vilja láta taka sig alvarlega að spila fyrir meistarflokk í úrvalsdeild.
Áfram FH
Davíð þjálfari
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Lovísa!!Lovísa!!
OOleii oleii olei oleiiii!!!
Lovísa!!Lovísa!!
OOleii olei!olei oooleiiii!!!
Post a Comment