Íslandsmót innhús er þá lokið og við FH-ingar spiluðum um 5-6 sæti og höfnuðum í 5-6 eftir markalaust jafntefli við Fjölnir.
Mótið fór ágætlega af stað í jöfnum og erfiðum leik gegn sterku liði Fylkis. Leikurinn fór 3-3 og verða það að teljast sanngjörn úrslit. Við gerðumst sekar um alvarlega varnarmistök þar sem við misstum boltann yfir okkur í tvígang og héldum ekki nógu góðri dýpt í varnaleiknum. Fylkir komst í 1-0, 2-1 og 3-2 en við jöfnuðum alltaf og þar sýndu stelpurnar virkilega styrk sinn. Við gefumst aldrei upp. Mörkin skoruðu: Halla 1 og Sigrún Ella 2.
Næst var komið að Völsung sem að höfðu komið á óvart og gert jafntefli við Breiðablik. Gaman var að sjá FH-inginn Svenna sjúkraþjálfara við stjórnvölin hjá Völsung. Aftur lendum við undir og er það áhyggjuefni að við lendum undir í öllum okkar leikjum á mótinu. En við FH-ingar sýndum að við erum mun betri en völsungur og unnum 3-1. Mörkin skoruðu: Valla 1 og Halla 2
Þegar þarna var komið sögu var okkar staða vænleg fyrir síðasta leikinn. Við vorum efstar í riðlinum með 4 stig, Breiðablik 2, Fylkir 2 og Völsungur 1. Við áttum 1 leik eftir gegn Breiðablik og okkur dugði jafntefli þar til að komast í krossspilið.
Leikurinn við Breiðablik var lífsspursmál fyrir Blika og þær komu ákveðnar til leiks og skoruðu 2 mörk með stuttu millibili í fyrri hálfleik og leiddu í leikhléi. Aftur höfðum við gerst sekar um varnarmisstök þar sem nú slæm dekkning kostaði a.m.k. 1 mark. Síðari hálfleikurinn var betri, við komumst vel inn í leikinn og vorum mun meira með boltann og sköpuðum okkur nokkur góð færi en því miður uppskárum við einungis 1 mark. Markið skoraði Halla.
Við spiluðum 7 leiki á mótinu unnum 3, gerðum 3 jafntefli og töpuðum 1. Við föllum út á 1 stig og einu marki. Það er minsti mögulegi munur. En þrátt fyrir það eru það vonbrigði fyrir okkur að við skulum ekki komast í krosspilið. Við erum með gott lið og góða leikmenn sem gefast aldrei upp og við eigum að vera í toppbaráttu. En nú er að horfa fram á veginn og Faxaflóamótið sem er framundan. Þar erum við við tvö 11 manna lið og ætlum okkur að sýna okkur sanna sem topplið.
kv. Davíð Þjálfari
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
HÆ...ÉG KEMST EKKI Á æfingu í kveld.. ég þarf víst að fara í kópavoginn að passa..en ég mæti á morgun..!:)
Post a Comment