Saturday, December 04, 2010

3. fl. Sannfærandi sigur á Ásvöllum

FH stelpurnar sigruðu granna sína í Haukum sannfærandi á Ásvöllum í dag. FH skoraði snemma í leiknum en Haukar jöfnuðu og komust óvænt yfir þvert á gang leiksins. Staðan í leikhlé 1-2. FHingar mættu stemmdir til síðari hálfleiks og jöfnuðu snemma. í kjölfari fylgdu þrjú mörk og sigurinn þeirra. Haukar fengu einnig sín færi til að minka munin en gerðu það ekki. Lokatölur 5-2.
Markaskorarar FH voru jafn margir og mörkin: Erna og Selma úr 4. fl. Alda, Tinna og Birta.

kv. Þjálfarar

No comments: