Thursday, November 25, 2010

4.Flokkur. Leikir um helgina og æfingin á morgun

Heil og sæl

Við munum taka æfingu á morgun á sama tíma og venjulega, 16:00, en takið einnig með ykkur hlaupaskó. Gervigrasið er langt frá því að vera æfingarhæft þannig að við tökum létt hlaup á morgun. Eldra ár er frjálst að mæta á æfingu með 3.flokki kvenna klukkan 18:00

Við munum leika tvo leiki um helgina. FH2 spilar á laugardaginn gegn A-liði Hauka á Ásvöllum klukkan 10:00 Á sunnudaginn spilar FH1 gegn Grindavík á Ásvöllum klukkan 11:00. Hópar verða tilkynntir á æfingunni á morgun.

Það er handboltamót um helgina og því er mögulegt að leikmenn sem eru í FH2 séu að spila á sama tíma einnig eru einhverjir leikmenn erlendis. Vinsamlegast látið mig vita sem fyrst ef þið komist ekki og þá getum við boðað aðra leikmenn í leikinn.

Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda

5 comments:

Anonymous said...

Ég kemst ekki að keppa á laugardaginn :-/

-Sara Líf

Anonymous said...

á ég að keppa á laugardaginn ?
-Mæja

Anonymous said...

faum við ekki nyja bolta og vestii og ehv einsog 5.flokkur ? (:
-melkorka katrin ;)

Anonymous said...

Jú, mikið rétt Mellý. Við erum að fá nýja bolta, Nike bolta, vesti og keilur.

Mæja við sjáum til. Það eru einhver forföll hjá FH2 og set liðið inn eftir æfingu á eftir.

Kv. Þórarinn B.

Anonymous said...

eru báðir leikirnir á Ásvöllum ? :O

hvenar er mæting og á ég að spila með?

- Jóna Elísabet Þórarinsdóttir :)