Heil og sæl
FH1 spilaði sinn fyrsta leik í ár og voru mótherjarnir Skagamenn. Leikið var í kuldanum í gær á ansi hörðu gervigrasi í Kaplakirka í gær en aðstæður hafa oft verið betri til knattspyrnuiðkunar en illa gekk að halda boltanum innan liðsins til að byrja með. Í hálfleik leiddi liðið með einu marki gegn engu. Skagamenn jöfnuðu leikinn í byrjun seinni hálfleik en stúlkurnar settu þrjú mörk í seinni hálfleiknum og endaði leikurinn með 4-1 sigri.
Liðið var mun betra liðið í gær og náði að skapa sér fullt af færum. Spilið hefur hinsvegar oft verið betra en í gær en aðstæður voru ekki upp á sitt besta til þess að spila alvöru bolta.
Markaskorarar: Selma með tvö mörk, Hildur María og Nótt með eitt hvor.
Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
kemst ekki á æfingu í dag mánud.
-hildurk
kemst ekki á æfingu á morgun/miðvikudag. er að fara í kistulagningu.
kv.Birta Mar
kemst ekki á æfingu á miðvikud.
er að fara til tannlæknis ;s
-sunna
kem a æfingu a morgun
en gæti komið kannski pinu seint er buin i skolanum 14 : 55 en mæti samt :)
kv gupnyasberg
Post a Comment