Wednesday, November 17, 2010

3. fl. Jafntefli á klakanum í Kóp.

FH-stelpurnar gerðu jafntefli í á skautasvellinu í Fagralundi í gærkvöldi. Aðstæður voru ekki góðar þetta kvöldið á annars ágætum gervigrasvelli þeirra HK-manna. Jafnræði var með liðunum og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.
Mark FH skoraði Elva Björk eftir góðan undirbúning þeirra Tinnu og Öldu sem átti góða stoðsendingu fyrir mark HK sem Elva afgreiddi eins og fagmaður. Elva minnti þar á kollega sinn ítalann Filippo (Pippo)Inzaghi sem er einn mesti markaskorari síðari tíma í fótboltanum. Með markinu laumaði Elva sér upp að hlið Öldu í efsta sæti á lista yfir markahæstu leikmenn FH í haust <<<--- til hliðar.
FH spilaði þokkalegan fótbolta í gærkvöldi við erfiðar aðstæður. Stelpurnar vörðust ágætlega, reyndu að halda boltanum innan liðsins. Þær sköpuðu sér nokkur fín færi og hefðu með réttu átt að auka muninn fremur enn að missa leikinn í jafntefli.

3 comments:

Anonymous said...

kemst ekki á æfingu í kvöld, er enn þá veik:(
kv.dagbjört

Anonymous said...

Ég kemst ekki á æfingu í kvöld
Kv. Dagmar

Anonymous said...

kemst ekki á æfnigu í kvöld..
-Helga