Friday, November 05, 2010

3. fl. FH2 gerði jafntefli við Aftureldingu

Lið FH2, sem að þessu sinni var blandað af stúlkum sem leikið hafa með FH1 og FH2, gerði 5-5 jafntefli við AFtureldingu á gervigrasinu í Mosó í gærkvöldi. Leikurinn var kaflaskiptur og margir leikmenn spreyttu sig á stöðum sem þeir hafa ekki leikið áður.
Í fyrri hálfleik var FH mun sterkara liðið á vellinum en í þeim síðari jafnaðist leikurinn. FH leiddi framan af en undir lokinn dró á milli og að lokum jöfnuðu stúlkurnar úr Mosfellsbæ.

Markaskorarar: Elva (2 mörk), Alda, Alana og Guðrún.

Almennt stóðu stelpurnar sig vel við erfiðar aðstæður en það var kallt og völlurinn var háll. Úrslitin í þessum leik skipta engu máli fyrir framhaldið en aðal atriðið er að allir fengu tækifæri til að sýna sig og sanna.

7 comments:

Anonymous said...

hæhæ ég kemst því miður ekki á æfingu í dag.
oktavía

Anonymous said...

ég kem ekki í hlaupið í dag.. en kem samt að horfa á æfinguna sjálfa :D og reyni að vera með í því sem ég get : )

viktoría valdís

Anonymous said...

hææ komst ekki a æfinguna aðan, er svo illt i öklanum og ætlaði bara að hvila i dag Kv.Sara Hólm

Anonymous said...

Er fyrir norðan og kemst ekki á æfingar um helgina
aþena

Anonymous said...

Kem ekki á æfingu fyrr en á mánudaginn 14 nóv :/
þarf að jafna mig allveg í fætinum
Kv.Sólveig Eggerts

Anonymous said...

15 nóv* hehe
-Sólveig

Anonymous said...

handbolta stelpurnar koma ekki á æfingu a mrg.. sunnudaginn.. keppa :)