Thursday, October 07, 2010

4.Flokkur. Lokahóf yngra flokka og "Litla lokhóf" 4.flokks Kvenna.

Heil og sæl

"Litla Lokahóf" 4.flokks kvenna verður á föstudaginn.

Yngra árið í 4.flokki, '98 árgangurinn, mætir á æfinguna á gervigrasinu. En '96 og '97 árgangurinn mætir klukkan 17:00.

Við munum taka létta æfingu þar sem við munum keppa í forvitnilegum "Ólympíugreinum" að hætti Kára Dodda. Eftir það er haldið inn í Kaplakrika þar sem þið farið í sturtu og síðan munum við borða flatbökur og verðlaun verða veitt fyrir "hin ýmsu" afrek í sumar. Reiknum með að við klárum um hálf átta.

Því miður getum við ekki gist í Kaplakrika aðfararnótt laugardags þar sem sviðið fyrir dansleikinn verður sett upp um nóttina.

Takið með ykkur 500 krónur.

Kv. Þóarinn B. og Kári Dodda.

15 comments:

Anonymous said...

er þetta á aðalvellinum eða gerigrasinu?

Anonymous said...

ömurlegt að gista ekki

Anonymous said...

er ekki hægt að gista í lækjarskola ???

Anonymous said...

getum við ekki gist samt bara næstu helgi eða í lækjó ?

Anonymous said...

afhv getum við ekki bara gist i lækjarskola ?
Kv.Sara Hólm

Anonymous said...

hæ ég er að fara til florida og kemst ekki á lokahófið og ekki heldur á æfingar í næstu viku
Hafdís Alda

Anonymous said...

eigum við að taka með fótbolta dót ?

Anonymous said...

mætum allar í peysunum sem við fengum fyrir Gothia Cup á lokahófið!:D

Anonymous said...

Getum við ekki bara gist í RISANUM!!
Veit ekki um peysuna sem við fengum fyrir Gothiacup :S

- Jóna :)

Anonymous said...

hérna verður þetta á gervigrasinu eða aðalvellinum?

Anonymous said...

kemst ekki á ææfinguna á sunnudag, verð í messu :$
-hildurk

Anonymous said...

Við komumst ekki á æfingu á sunnud. erum uppí bústað :)
kv.Birta og Sara :)

Anonymous said...

hvenar er þessi fundur fyrir eldra ár?

Anonymous said...

hvenær er fundurinn hjá 3.fl eða klukkan hvað??

Anonymous said...

Ég komst ekki á miðvikudaginn , þvi ad eg var ad skreyta fyrir vinaballið , og eg kem ekki á föstudaginn né sunnudaginn :)

Kv. Sara Lif