Heil og sæl
Haustfaxinn fór af stað um helgina og spiluðu FH2 og FH3 í Kaplakrika.
Yngra árið skipar lið FH3 og tóku þær á móti Haukum. Liðið lék feykivel í leiknum, lenti undir en jafnaði skjótt og stóðu leikar 1-1 í hálfleik. Seinni hálfleikur bætti liðið við tveimur mörkum og uppskar liðið 3-1 sigur gegnum grönnum sínum úr Haukum. Markaskorar: Melkorka "Korký" með tvö mörk og Ásdís "Refur" með eitt.
Liðið spilaði flottan bolta allan leikinn og var sérlega gaman að sjá til þeirra sem voru að spila í fyrsta sinn á "stóran" völl.
FH2 spilaði strax á eftir og voru mótherjarnir Keflavík. Liðið skipa leikmenn sem eru á eldra ári en eru ekki í FH1. Liðið var hálfsofandi í byrjun en eftir erfiða byrjun vaknaði liðið og lék vel. Seinni hálfeikur var algjörlega í eigu liðisins og þó svo að liðið lenti 0-2 undir þá gafst liðið ekki upp og náði að jafna leikinn í 2-2 og óheppið að klára ekki leikinn.
Fyrir utan fyrstu 20 mínúturnar þá leit liðið mjög vel út þó sér í lagi í seinni hálfleik.
Markaskorarar: Hildur Kolfinna og Hafdís Alda sem mætti í gulustu skóm sem sést hafa í Kaplakrikanum á þessari öld.
Vikuplanið er komið hér til hliðar.
Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
kemst ekki á æfingu í dag.
kv birta mar :-)
kemst ekki á æfingu
-kolbrún
kem ekki á æfingu í dag / miðvikudagur
-hildur maría
kemst ekki á æfingu í dag er í tónlistaskólanum kv Sigrú Birna
sorry að ég komst ekki á æfingu í dag
Hafdís Alda
Post a Comment