Friday, October 29, 2010

3. fl. FH2-Selfoss 2-3

FH2 tapaði naumlega fyrir Selfoss 2-3 í sínum fyrsta leik í Haustfaxanum. FH stelpurnar höfðu frumkvæðið framan af en hægt og bítandi vann Selfoss sig inn í leikinn og leiddi síðari hluta fyrri hálfleiks. Síðari hálfleikur byrjaði líkt og þeim fyrri lauk. Selfoss var meira með boltann og meira ógnandi. FH stelpurnar unnu sig hins vegar vel inn í leikinn aftur og sóttu grimmt á lokamínútunum. Það dugði hins vegar ekki til og Selfoss sigraði leikinn.
Markaskorarar FH voru þær Selma og Erna sem báðar eru í 4. fl.

1 comment:

Anonymous said...

kolbrún skoraði ekki elva ;s