Stelpurnar í 3ja bunda enda á keppnistímabilið í gærkvöldi þegar þær snæddu á veitingastaðnum Ítalíu. Tímabilið var gott og þrátt fyrir að uppsett markmið hafi ekki náðst er árangurinn ásættanlegur. Upp úr stendur frábær ferð til Portúgal sem tókst afar vel. Þar skiptir mestu máli hversu góðir félagar stelpurnar eru hversu vel þær standa saman.
Framundan eru breytingar þar sem eldra árið gengur upp í 2. fl. og hið yngra sest í leiðtogasætið. Ég hvet eldri stelpurnar til að halda áfram að æfa á fullu og hafa metnað til að komast í liðið á næsta ári. Allar eiga þær erindi í 2. fl. og jafnvel sumar sem geta orðið framtíðar leikmenn fyrir FH. Framundan eru skemmtilegir tímar í 2. og mfl. og allar ættu þær að taka þátt í því. Við þær yngri vill ég segja að nú er ykkar tími komin til að leiða 3. fl. Þið verðið að axla ábyrgð á liðinu gera hvað þið getið til að ná árangri á komandi tímabili.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hjálpað hafa til við starfið á tímabilinu 2009-2010. Sérstaklega vil ég þakka þeim Helgu, Jóni Bergþóri og Knúti fyrir þeirra framlag til þess að gera Portúgalferðina mögulega. Erla fær sérstakar þakir fyrir frábæra fararstjórn og fyrir að reynast góður félagi á ferðalagi. Ég vil reyndar taka það fram að ég hef hana grunaða um að svindla í spilum en látum það liggja milli hluta. Þá er Sverrir Garðars einnig þakkað fyrir einstaka innkomu í þjálfunina og það sem hann hafði að gefa í ferðinni góðu. Mér er það til efs að eins vel hefði tekist til ef hans hefði ekki notið við.
kv. Davíð
! Myndin hér að ofan var tekin fyrir utan skemmtistað við höfnina síðasta kvöldið í Lissabon. Með stelpunum á myndinni eru þeir Jorge, Gonzales og Pedro en þeir færðu stelpunum rauðar rósir á kveðjustundinni. Ef vel er að góð má sjá saknaðartár í hvarmi stúlknanna.
No comments:
Post a Comment