Heil og sæl
B1 hefur lokið keppni í Íslandsmótinu með góðum sigri á Val 3-2 á Vodafone-vellinum. B1 endaði mótið í öðru sæti og fær að launum sifurpening frá KSÍ.
Liðið hefur leikið feiknavel í sumar en liðið tapaði aðeins einum leik en aðrir enduðu með sigri.
Liðið lék ágætlega í dag en hefur þó spilað mun betur í sumar. Liðið er vel að þessu komið en í dag voru markaskorarar Hildur María, Kolbrún(sem fagnaði eins og óður maður í dag) og Konný. Nánari umfjöllun um B1 kemur inn á vefinn á næstu dögum.
B2 á eftir að spila þrjá leiki í Íslandsmótinu. HK-leikurinn verður á föstudaginn en tímasetning varðandi Þórsleikinn og Gróttuleikinn verður vonandi ljós strax á morgun.
A-liðið endaði svo keppnina í A-riðli í öðru sæti með sigri í hörkuleik gegn Val 1-2 sem var spilaður á Vodafone-velli þeirra Valsmanna. Glæsileg umgjörð var í kringum þessa tvo leiki og eiga Valsmenn hrós skilið fyrir umgjörðina. Leikurinn í dag einkenndist af mikilli baráttu en lítið um spil framan af. Seinni hálfleikur var mun betri hjá stelpunum og meira í átt við það sem við könnumst við frá þeim. Alda Ólafsdóttir var með tvö mörk í dag.
A-riðillinn var feikna sterkur í ár og því er það fínasti árangur að enda í öðru sæti með 21 stig og sæti í úrslitakeppninni.
Það er frí á æfingu á morgun en við æfum vel á fimmtudaginn og föstudaginn. Sjá nánar hér til hliðar, æfingatöfluna.
Munið B2 að kíkja inn á síðuna á morgun. Akureyrarferðin verður vonandi sem allra fyrst.
Kv. Þórarinn B. og Kári Dodda.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
kem á æfingu á mrg, en kemst ekki á föstud, kv bryndís ýr
ætla að hvíla í dag útaf lærinu..
kv.dagbjört sól
kem kannski aðeins of seint útaf einhverju fermingardæmi
-Hildur María
Ég kem ekki á æfingu í dag(fimmtudagur),
er veik.
-Dagmar
kem ekki á æfingu í dag : /
-agnesýr
Post a Comment