Friday, August 27, 2010

3. fl. Tap þrátt fyrir góða baráttu

FH stelpurnar gátu gengið með reisn útaf vellinum eftir 1-3 tap gegn Stjörnunni í kvöld. FH fékk fjölda færa og hálffæra í fyrri hálfleik en það voru gestirnir sem voru yfir í leikhlé 0-1. Elín Lind Jónsdóttir jafnaði úr vítaspyrnu fyrir FH snemma í síðari hálfleik en gestirnir svöruðu skömmu síðar og bættu við marki undir lok leiksins.

FH liðið barðist vel í leiknum og allir leikmenn liðsins lögðu sig hvað mest þeir máttu. Hins vegar er það stundum svo að hlutirnir falla ekki með manni og þá eru það þeir sem nýta færin sem sigra.

Næsta æfing verður á sunnudagseftirmiðdag eða á mánudag. Nánar á morgun.

kv. Davíð

1 comment:

Anonymous said...

hvar er æfingin i dag hjá 4?