Heil og sæl
Á morgun, miðvikudag, munum við etja kappi við Stjörnuna í Garðabænum og síðan eftir leik er stefnan tekin á höfuðborgina þar sem allur hópurinn fer í bíó.
Leikurinn hefst klukkan 16:45 og erum við búin að spila rétt fyrir 18:00. Mæting er 16:15 á Stjörnuvöll - gervigrasvöllinn. Við náum að spila heilan leik og munum við skipta ört inn á. Þeir leikmenn sem mættu á síðustu æfingu eiga að mæta, átján leikmenn alls. Bið ég þá leikmenn sem eru búnir að vera veikir og í leyfi frá æfingum að hafa samband við mig sem fyrst. Það verður kalt á morgun og bið ég leikmenn að mæta vel búnir til leiks og þá sem ætla að koma að horfa á.
Strax eftir leik eiga leikmenn að fara heim til sín og fara í sturtu og ný föt og er ætlunin að hópurinn hittist í Firði 19:00 og taka strætó til Reykjavíkur. Þar ætlum við að hoppa út í Kringlunni og fara á fjölskyldumyndina City of Ember .
Ég geri ráð fyrir að flestir leikmenn hafi ekki séð þessa mynd þar sem hún er nýkomin í kvikmyndahús og því tókum við þá ákörðun að fara á þessa mynd. Það sem leikmenn þurfa að taka með sér er fyrst og fremst góða skapið, peninga fyrir strætóferð,bíómiða og fyrir einhverju til að maula með myndinni. Geri ráð fyrir að 1500 eigi algjörlega að duga.
Myndin er búin um 21:40 og biðjum við foreldra vinsamlegast að sækja dömurnar í Kringlubíó.
Kv. Þórarinn B.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
20 comments:
Eigum við að mæta í FH-treyjum eða er í lagi ef við erum bara í einhverju öðru?
Mæta í FH-treyjum. Ég kem einnig með búninga.
Kv. Þórarinn Böðvar
Þarf að koma með bíómiða?? má ekki bara kaupa miða á staðnum ?
Mega þeir sem komu ekki á æfingu keppa á morgun ?
Að sjálfsögðu kaupm við miðana á staðnum :)
Agnes. Mættu á morgun í leikinn.
Kv.Þórarinn Böðvar
Hæ Þórarinn afhverju á ég að mæta á morgun??? veit ekki hvort ég get mætt er búin að vera lasin og tæp í nára en kem kannski í bíóið
Ekkert mál Agnes.
Ég las óvart eins og þú hefðir verið að skrifa hér að ofan. En ég bið allar þær sem mættu ekki á síðustu æfingu að hafa samband við mig á morgun fyrir leikinn. Elva Ástþórs á að sjálfsögðu að mæta.
Kv. Þórarinn Böðvar
hæ, heyrðu er í lagi að ég horfi bara á leikinn?
-Katrín
heyrðu ég kemst ekki á æfingu í dag..
kveðja,
dagmar
hæ tóti ég kem ekki á æfingu í dag (miðvikudag)því að mér er svo illt í hnénu eftir leikinn í gær en ég kem á sunnudaginn Kv.Saraholm
ég meina fimmtudag
Hey tóti, kem ekki á æfingu í dag (fimtudag),ég datt illa á rófubeinið og get ekki hlaupið mikið eða beygt mig niður
-Katrín
kems ekki á æfingu í dag:(ég er með svo mikinn hausverk:(en ég kem á sunnudaginn
-Birta
Hæ, kemst ekki á æfingu í dag er nýbúin að vera veik :(
Kv.Þórhildur
Hæ...komst ekki á æfingu í dag(fimmtudag) af því að ég var á jólaballi og svo er mér líka svo illt í hnénu:$
-DagbjörtSól;)
kemst ekki á æfingu á sunnudaginn...;(
bara að láta vita;P
-Sylvía
verður jólaæfingin bara venjuleg æfing
kem ekki á æfingu í dag ef það er æfing því ég er veik.
-Erla
Gleðileg Jól og Farsælt komandi ár og hafi það gott um jólin jólakveðja XXXXXXXXXXX
Post a Comment