Monday, December 15, 2008

3. fl. æfingaáætluna 17.-21. des


Samkvæmt mínum heimildum er fjöldi jólaballa á fimmtudaginn og mun það hafa áhrif á æfingatöfluna.


Mið. 17. des. kl. 16:30 æfing Suðurbæjarsundlaug, 30 mín. skokk og sund á eftir

Fös. 19. des. kl. 18:00 æfing Bjarkarhús !Ekkert skokk

Sun. 21. des. kl. 11:00 Lúxus-jólaæfing Risinn


! Á sunnudaginn koma jólasveinarnir Jón Þór Brandsson og Arna Steinssen, þjálfarar 2. og mfl. kv. og stýra æfingunni.

Helsti postuli kvennaboltans Jón Þór er reynslumikill þjálfari sem þjálfað hefur fjölda flokka vítt og breitt þó mest hjá FH. Arna er keppnismaður af guðsnáð sem leikið hefur fjölda landsleikja í handbolta og fótbolta auk þess að hafa þjálfað bæði félagslið og landslið með góðum árangri. Það fengur fyrir kvennaboltann í FH að hafa á að skipa svo frambærulegu teymi við stjórn á flaggskipinu sem stöðugt er í sókn.

Að lokinni æfingu verður stormað inn í Krika þar sem frúkost bíður á borðum. Að loknum mat verða hin árlegur litlu jól 3. fl. kv. þar sem leikmenn kaupa jólagjöf (hámarksverð 500.- kr.) og setja í pokann. Jólasveinninn dregur svo gjafirnar úr pokanum.


kv. Davíð


! Ps. sunnudaginn 28. verður Jólabíóferð yngriflokka. Miðaverð er 1000.-kr. og hægt er að kaupa miðana í Músík og Sport, staðgreitt. Ágóðinn rennur eins og venjulega til góðsmálefnis. Undanfarin ár hefur safnast umtalsverð upphæð af uppátækinu og peningunum vel varið.


1 comment:

Anonymous said...

ég kemst ekki æfinguna á miðvikudag og föstudag en kem á sunnud.
Kv.magnea