Friday, March 11, 2005

BITABOXIÐ

Vegna fjölda áskoranna og mikillar eftirspurnar verður boðið upp á nýjan kafla hér á blogginu og skal hann nefndur BITABOXIÐ. BITABOXINU er ætlað vera ykkur nesti á hinni þyrnum stráðu leið til afreka í íþróttum. Þar verður að finna kjarngóða og nærandi mola sem nýtast geta öllum þeim er leggja stund á íþróttir og þá sérstakleg knattspyrnu. Hægt verður að leggja inn fyrirspurnir og mun ég reyna að vinna úr þeim af fagmennsku og finna við þeim svör.
Er það einlæg ósk mín að þið leikmenn í 3. og 4. fl. kv. lesið og tileinkið ykkur nestið í BITABOXINUN.

kv. Davíð þjálfari.

No comments: