Sunday, March 06, 2005

4.fl. Góður dagur í Fífunni, HK-FH 1-4

Já stelpurnar spiluðu góðan leik í dag í Fífunni við HK sem að oft hafa reynst okkur erfiðar. Leikurinn var í þrem hlutum 30-20-30 eða smt. 80 mín. og því í lengri kantinum því hefðbundinn leikur í 4. fl er 35-35 eða 70 mín.

Segja má að HK-meyjar hafi byrjað betur því þær sóttu fast á fyrstu mín. leiksins. það má því segja að það hafi verið þvert á gang leiksins þega Hlín skaust upp kantinn og skoraði gott mark og sýndi hversu fylgin sér hún getur verið þegar hún tekur sig til. Eftir markið var jafnræði með liðunum það sem eftir lifði leiks en ólíkt HK vorum við að skapa okkur færi og nýta þau. Sem dæmi um það þá komst stormsentirinn Sigrún Ella þrisvar ein á móti markmanni og samkvæmt bókinni gerði hún allt rétt enn inn vildi boltinn ekki. Lokatölur HK 1 FH 4. Mörkin skoruðu: Hlín 1, Alma Gytha 2 og Alexandra 1.

Í dag sýndum við hvað við getum á móti góðu liði. Ólíkt leiknum gegn Aftureldingu á miðvikudaginn var mikil bárátta í liðinu og augljóst að við vorum komnar til að spila fótbolta og vinna. Vörnin, þó hún sé ekki gallalaus, var góð og færslur frá hægri til vinstri og fram og aftur góðar. Miðjan var frábær í dag þar sem Sigmundína spilaði manna best og átti frábæran leik. þá var sóknin fín og gerði það sem fyrir hana var lagt, víð nýttum kostina okkar sem eru fljótir framherja sem unnu vel úr stungusendingunum. Sérstaklega vil ég minnast á fyrra markið sem Alma skoraði þar sem hún stakk sér á milli varnarmann HK skyldi þá eftir og dúndraði framhjá markmanni HK.

Sem sagt fínn dagur, og menn leiksins Sigmundína og Iona sem var frábær í markinu í dag og sýndi okkur að hún er markmaður í fyrsta flokki á sínum aldri.

Takk fyrir daginn
Davíð Þjálfari.

3 comments:

Anonymous said...

Hæhæ Davíð, ég kem ekki á æfingu í dag af því ég er meidd í fætinum.
Kveðja Ólöf

Anonymous said...

frodleiksmola a tessa sidu ! Koma med nettan geira sveins

Anonymous said...

Hæ ég kemst ekki að keppa á eftir
kv
andrea:/