Saturday, February 19, 2005

Lovísa skoraði fyrir mfl.og Ingibjörg lék vel.

3. flokks-leikmennirnir Ingibjörg Pálmadóttir og Lovísa Erlingsdóttir léku sína fyrstu leiki með úrvalsdeildarliði FH gegn Keflavík í Faxaflóamótinu í dag. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöll og lauk með sigri Keflavíkur 3-2. Sigurður Víðisson þjálfari mfl. var ánægður með stelpurnar og sagði að þær hefðu staðið sig vel. Ingibjörg var hafsent í vörninni og spilaði 80 mín. en Lovísa var senter, spilaði 90 mín. og skoraði þar sitt fyrsta mark í sínum fyrsta alvöru leik fyrir mfl..
Á morgun spilar svo mfl. við Breiðablik í sama móti og þá fá Ingibjörg og Lovísa frí en Linda Björgvinsdóttir kemur inn í liðið.

Ég óska þessum leikmönnum til hamingju með þennan áfanga um leið og vona að þetta verði öðrum hvatning.

Davíð

No comments: